Með stjórnlagaþingi gefst einstakt tækifæri til tímabærrar endurskoðunar á íslensku stjórnarskránni. Miklu skiptir að öflug umræða verði um þau siðferðilegu gildi sem eru grundvöllur stjórnarskrárinnar og að stjórnlagaþingið leiði til vitundarvakningar meðal almennings um sameiginleg verðmæti íslensks samfélags. Brýnt er að íslensk réttarskipan standi á traustum grunni og dregnir verði nauðsynlegir lærdómar af bankahruninu.
Almenn mannréttindi, jafnræði þegnanna og temprun valds með skýrri verkaskiptingu og ábyrgð þeirra sem fara með æðstu völd eru þau siðferðilegu gildi sem ég tel að liggja eigi til grundvallar breytingum sem gerðar verða á stjórnarskránni.